Fundargerðir
Deildarfundir lagadeildar, fundur nr. 32

Dags. 13.10.2009

 

Deildarfundur 7. október 2009 kl. 15.

 

Mættir, Ingvar Christiansen, Davor Purusic, Ingibjörg Ingvadóttir, Ingibjörg Þorsteinsdóttir, Ástráður Haraldsson og Einar Karl Hallvarsson.

 

Dagskrá

 

1. Nýr fulltrúi nemenda í grunnnámi, Ingvar Christiansen, boðinn velkominn.

 

2. Almennt um stöðu mála:  Umræður um það hvernig önnin hefði farið af stað og hvort einhver verkefni eða vandamál blöstu við sem leysa þyrfti úr. Ekkert slíkt kom fram og virðist sem starfsemi deildarinnar sé í ágætum skorðum.

 

3. Tútor og kennsla haustannar; ræddum um reynslu af nýja tútorfyrirkomulaginu fyrir 1. árið og kennarar amk. mjög ánægðir með það.

 

4. II staðfesti að dómsmálaráðherra yrði gestur á málstofu deildarinnar 21. okt. n.k.

 

5. Breytingar á reglugerð skólans; IÞ vakti athygi á breytingatillögu sem varðar ritstuld; verið að styrka heimildir skólans til að bregðast við og beita viðurlögum. Umræður.

 

6. Bókarkaup: IÞ óskaði eftir að þeir kennarar sem ekki hefðu sent inn ábendingar um bókakaup til bókasafnsins gerðu það hið fyrsta og sendu afrit til deildarforseta Mikilvægi þess að halda jafnri og reglulegri söfnun bóka á öllum sviðum sem kennd eru við skólann rætt.

 

7. Staða rannsókna. Kennarar gerðu grein fyrir hvaða greinar, bækur og ráðstefnur væru í burðarliðnum eða  á hugmyndaborðinu. ÁH tók að sér að sjá um vinnuréttardag, með líku sniði og áður hefur verið haldinn á Bifröst og IÞ og II hafa tekið að sér að ráðstefnu á vorönn í samráði við Skattaréttarfélagið.

 

8. Breyting á námsvísi BS náms í viðskiptalögfræði: IÞ lagði til, eftir ábendingu frá deildarforseta viðskiptadeildar, að  fellt yrði út námskeiðið stjórnunarbókhald á vorönn 2. árs og í staðinn kæmi reikningshald II, sem er framhald í ”ársreikningalæsi”. Samþykkt.

 

9. Annað

 

  1. Bréf til forsætisnefndar Alþingis vegna álits UA nr. 5118/2007. Drög að bréfi frá skólanum kynnt, en bréfið er skrifað í nafni rektors í samvinnu við fasta kennara deildarinnar. Verður sent í dag frá skólanum og því fylgt eftir, eftir því sem þurfa þykir. Umræður.
  2. Fyrirspurn frá IC varðandi möguleika á því að hafa myndupptökur í tíma eða amk. að nemendur fái aðgang að fjarnámsupptökum í sambærilegum námskeiðum, séu þær fyrir hendi. Fyrirspurnin kemur til vegna óska nemenda í arðsemisgreiningu sem vilja kanna möguleika á því að hafa aðgang að ítarlegri rafrænum kennslugögnum. Umræður. Ákveðið að IÞ myndi kanna málið.
  3. DP viðraði hugmyndir um breytingar á fyrirkomulagi í kennslu í almennri lögfræði. Umræður. Nánari tillögur þurf að liggja fyrir svo hægt sé að taka afstöðu til málsins.

 

Fleira ekki rætt, fundi slitið kl. 17.05
Fundaritari; IÞ



Til baka

 

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri