Fundargerðir
Deildarfundir lagadeildar, fundur nr. 33

Dags. 7.4.2010

 

Mætt: Bryndís, Einar Karl, Ingibjörg I, Ingibjörg Þ, Ingvar, Davor.
 
1.Missóvika. Forseti greindi frá því að fyrirhuga er að taka upp þá nýbreytni að veita verðlaun fyrir besta misserisverkefnið og hafa verðlaunaafhendingu fyrir það á lokadegi í missóviku. Missóverkefni verði haldin á miðvikudegi og föstudegi í missóviku en fimmtudagurinn er sumardagurinn fyrsti og þá er opið hús.


2. Skipulagbreytingar (deildaskipting ofl). BH greindi frá þeim skipulagsbreytingum sem hafa áður verið kynntar á deildarfundi og hefur nú verið ákveðið að ráðast í af stjórn skólans. Málið er enn í vinnslu og verður kynnt frekar á næstunni.  Fram komu óskir um það að málið verði kynnt ítarlega á fundum á vinnslustigi með nemendum og kennurum, svo vandlega sé að öllu staðið. Einnig kom fram óánægja með að hvergi væri vettvangur fyrir kennara til að taka ákvörðun um fræðslumál skólans og því þyrfti að breyta í nýju skipulagi.

 

3. Önnur mál

  • sjálfsmatskýrsla lagadeildar. BH sagði frá vinnu við sjálfsmatsskýrslu lagadeildar
  • málþing 28. apríl um hlutverk og stöðu embættismanna. BH greindi frá fyrirhuguðu málþingi sem lagadeild hefur skipulagt og verður haldið 28. Apríl á Bifröst. Lagadeild og viðskiptadeild í grunnámi munu báðar taka þátt í námskeiðinu til eininga.

 

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 16.12.
Fundargerð ritaði BH.



Til baka

 

  

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri