Fundargerðir
Deildarfundir lagadeildar, fundur nr. 31

Dags. 27.5.2009

Deildarfundur lagadeildar Háskólans á Bifröst, 27. maí 2009, kl. 13.30.

Mætt: Bryndís, Ástráður, Ingibjörg Þ, Ingibjörg I, Sigurður Arnalds, Einar Karl, Davor, Sigrún Rósa.

Dagskrá:

1. Erindi frá nemendum. Davor og Sigrún Rósa kynna ábendingar sem komið hafa frá nemendum, annars vegar vegna ML náms og hins vegar vegna grunnáms. Davor greindi frá könnun sem hann gerði á meðal ML nema um innihald námsins, þjónustu og fleira sem snýr að náminu.  Umræða.  Rætt um að æskilegt væri að auka enn áherslu á kennslumöt og yfirfara námið með það í huga hvort kúrsum væri ofaukið, vantaði eða þá að það væri “overlap” á milli kúrsa.  Sigrún Rósa greindi frá niðurstöðum panelumræðna nemenda sem miðstjórn stóð fyrir og var hugsað sem vettvangur fyrir nemendur til að koma athugasemdum á framfæri við fulltrúa nemenda, sem myndu síðan vinna úr því og koma á framfæri við skólayfirvöld. Margar góðar ábendingar komu þar fram.  Umræður.
2. Inntaka og staða umsókna. BS: Góð umsóknastaða, glæsilegur hópur sem hefur þegar  verið tekinn inn í námið fyrir haustið. ML: nokkrir koma inn í haust, flestir um áramótin. 
3. Önnur mál.
a. Ákveðið hefur verið að hefja  inntöku í MA í skattarétti og LL.M nám á áramótum í staðinn fyrir  í haust . Nemendur úr BS námi á Bifröst útskrifast á áramótum.
b. Breytingar á starfsmannamálum. BH fer í leyfi í september og október, IÞ leysir hana af. Elín fer í fæðingarorlof á næstunni, kemur aftur á vorönn til kennslu. Sigurður Arnalds; hefur óskað eftir að fá launalaust leyfi í eitt ár frá og með 1. september, vegna annarra verkefna sem hann hefur tekð að sér.  Hann mun þó kenna samningarétt á haustönn.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 14.50.
Fundargerð ritaði Bryndís Hlöðversdóttir.

 



Til baka
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri