Deildarfundir félagsvísindadeildar, fundur nr. 14
Dags. 3.1.2007
Mætt: BH, VK, EBE, KBG, GÞE, IW, JÓ
Svanborg Sigmarsdóttir stundakennari sat einnig fundinn.
Dagskrá
1. Námskeið, kennsluáætlanir og verkefnaálag á önninni
Farið yfir námsáætlanir. Vikið er frá reglugerð í nokkrum tilfellum um verkefnafjölda. Sótt verður um undanþágu frá reglugerð til Háskólaráðs, þar sem verkefnafjöldi í námskeiðum er tilgreindur í reglugerðinni. Endanlegar gerðir námsáætlana eiga að vera tilbúnar og komnar á netið fyrir vikulokin. Þær verða einnig geymdar á lesdrifi í möppu sem merkt er Félagsvísindadeild.
2. Úttekt á deildinni vegna nýrra háskólalaga
JÓ sagði frá fundi sem halda á með fulltrúum menntamálaráðuneytisins 4. janúar um matsferli háskóladeilda samkvæmt nýjum háskólalögum og viðmiðum um æðri prófgráður.
3. Nefndavinna á vegum deildarinnar
JÓ er að reyna að halda utan um nefndasetu deildamanna. Mikilvægt að það sé á hreinu hverjir sitja í hvaða nefndum og hvert hlutverk nefndanna er (sjá hjálagða töflu).
4. Framhald á þróunarstarfi deildar (grunnnám og meistaranám)
Þróunarnefnd mun halda áfram með drög að handbók sem JÓ kynnti á síðasta fundi 5. 12. BH og VK munu sitja ásamt JÓ í þróunarnefnd sem mun á næstu mánuðum gera tillögur um námsframboð og námsmarkmið.
5. Meistaranám: Möguleiki á að sleppa ritgerð, næstu skref í uppbyggingu
Talsvert hefur verið rætt um að taka upp 45 eininga M.A. gráðu án ritgerðar. Ákveðið að gefa að svo stöddu að veita undanþágur þegar sótt er um þetta og ástæða er til að víkja frá kröfu um lokaritgerð. Sömuleiðis geta nemendur sótt um að útskrifast með 30 eininga diplómu.
6. Samstarf við Hvanneyri
JÓ sagði frá fundi sínum með Ágústi Sigurðssyni og Birni Þorsteinssyni. Áhugi er fyrir samstarfi, hugsanlega með nemendaskiptum til að byrja með.
7. Misserisverkefni og útkoma þeirra á síðustu önn
Rætt var um misserisvarnir síðustu annar. Ákveðið að deildin setji sér skýrari viðmið um misserisverkefni í deildinni. Einnig að kennarar hafi meira samráð sín á milli um leiðbeiningar til nemenda. KBG benti á að mikilvægt væri að hópar væru ekki látnir sitja yfir hópum í öðrum deildum.
8. Prófdæming BA ritgerða
JÓ leggur til að ekki verði um formlega prófdæmingu B.A. ritgerða að ræða í deildinni heldur að kennarar taki að sér að fara yfir einkunnagjöf hver hjá öðrum. Þetta var samþykkt.
9. Erindi nemenda
Nemandi óskaði eftir að fá 6 einingar metnar úr lögfræðinámi sínu við HÍ. Samþykkt.
10. Önnur mál
KBG minnti á áform um að kynningu á HHS í atvinnulífinu. Unnið verður að slíkri kynningu í vor ekki síst til að auðvelda útskriftarnemendum atvinnuleit og sjálfskynningu sem henni fylgir.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17.10
Til baka