STEFNA HÁSKÓLANS Á BIFRÖST UM OPINN AÐGANG
Háskólinn á Bifröst hefur markað þá stefnu að sem flestir geti notið afurða þess vísindastarfs sem unnið er af akademískum starfsmönnum við skólann. Til þess að svo megi verða samþykkja akademískir starfsmenn skólans að leitast við að birta fræðigreinar sínar í opnum aðgangi, annað hvort í gegnum tímarit sem gefin eru út í opnum aðgangi eða með safnvistun. Þá heimilar sérhver akademískur starfsmaður háskólanum að gera vísindagreinar ritaðar af starfsmanninum aðgengilegar og vista þær í opnum gagnagrunnum s.s. Skemmunni. Gildir þetta um allar vísindagreinar ritaðar af starfsmanninum, einum eða með fleiri höfundum, á þeim tíma sem hann er ráðinn til háskólans.
Undanskildar eru bækur, kennsluefni, skýrslur, álitsgerðir eða annað efni en fræðigreinar sem birtast í vísindatímaritum. Undanskildar eru einnig vísindagreinar sem lokið var við fyrir gildistöku samþykktarinnar og greinar sem hafin var vinna við fyrir gildistökuna og um gilda skilmálar sem ekki falla að samþykktinni.
Rektor eða fulltrúi rektors mun undanskilja einstakar vísindagreinar frá samþykktinni, eða seinka birtingu þeirra um tiltekinn tíma, óski viðkomandi starfsmaður þess skriflega.
Sérhver akademískur starfsmaður afhendir án endurgjalds rafræna útgáfu af lokaútgáfu höfundar af greinum sínum, ekki seinna en á útgáfudegi, til viðeigandi fulltrúa á skrifstofu rektors á viðeigandi formi (svo sem PDF) samkvæmt fyrirmælum skrifstofu rektors.
Skrifstofa rektors getur gert greinina opinbera í rafrænu gagnasafni með opnum aðgangi. Skrifstofa rektors er ábyrg fyrir túlkun samþykktarinnar, lausnar á ágreiningsmálum og tillögum um endurbætur þegar við á. Samþykktin verður endurskoðuð eftir þrjú ár og skýrsla um hana kynnt fyrir akademískum starfsmönnum.
Samþykkt á kennarafundi 18. maí 2011
Háskólinn á Bifröst
Háskólinn á Bifröst gefur út Tímarit um félagsvísindi í opnum aðgangi. Greinar í því eru birtar á vef skólans reglulega árið um kring en tímaritið kemur út á prenti árlega. Ritstjóri er dr. Ian Watson, lektor.
Tímaritið er aðgengilegt hér
Tímarit um félagsvísindi / Bifröst Journal of Social Science .