Markmið Háskólans á Bifröst með gerð jafnréttisáætlunar eru að jafna aðstöðu karla og kvenna innan háskólans, m.a. hvað varðar laun og önnur starfskjör, þátttöku í stjórnun og aðstöðu og tækifæri til náms. Í því ljósi setur skólinn sér svohljóðandi áætlun.
Laun og önnur starfskjör
- Ráðningar innan skólans skulu endurspegla vilja hans til að jafna stöðu kynjanna innan hverrar rekstrareiningar og deildar. Verði tveir eða fleiri taldir jafnhæfir til starfs, skal sá valinn til starfsins sem er af því kyni sem er í minnihluta á umræddu starfssviði innan skólans.
- Þegar störf eru auglýst, skal tekið fram að við ráðningar sé tekið mið af jafnréttisáætlun.
- Þeir aðilar sem skipa dómnefndir til hæfnismats, eru hvattir til að skipa fulltrúa af báðum kynjum.
- Við úthlutanir á verkefnum eða ákvörðunum um starfsaðstæður skal þess gætt að ekki eigi sér stað mismunun á grundvelli kyns.
- Við ákvörðun launa skal þess gætt að kynjum sé ekki mismunað. Konum og körlum skulu greidd jöfn laun og skulu njóta sömu kjara í hvívetna fyrir jafnverðmæt störf.
- Sviðsstjóri fjármála skal í maí ár hvert taka saman kynbundnar upplýsingar um laun og önnur starfskjör og leggja fyrir rektor. Hann fundar síðan með jafnréttisnefnd um niðurstöðu könnunar og aðgerðir.
Þátttaka í stjórnun
- Við skipan í stjórnir, ráð og nefndir á vegum skólans skal leitast við að hafa kynjahlutfall sem jafnast.
- Sé leitað eftir tilnefningum af skólans hálfu í stjórnir, ráð og nefndir, skal lögð áhersla á að tilnefna fólk af báðum kynjum, verði slíku við komið.
- Jafnréttisnefnd skal í maí ár hvert safna gögnum um kynjahlutfall í stjórnum, nefndum og ráðum fyrir liðið háskólaár.
Aðstaða og tækifæri til náms
- Við inntöku nýrra nemenda skal þess gætt að jafnvægi sé á milli kynja í einstökum deildum. Miðað skal við að lágmarkshlutfall hvors kyns innan einstakra deilda sé 40%. Nái deild ekki því markmiði við inntöku, skal deildarforseti gera rektor og jafnréttisnefnd grein fyrir ástæðum þess.
- Auglýsinga- og kynningarstarf skal miða að því að laða bæði kynin jafnt til náms við skólann.
- Deildir skulu leitast við að byggja upp starfsanda í námi og kennslu sem gerir báðum kynjum jafnhátt undir höfði. Sama gildir um stoðþjónustu og aðrar rekstrareiningar.
- Reglur skólans og túlkun þeirra skulu fela í sér svigrúm í námi og próftöku vegna meðgöngu og barnsfæðinga.
Aðstaða og tækifæri við og eftir útskrift
- Við útskrift skal skólinn sérstaklega styðja við konur á meðal útskriftarnema í þeim tilgangi að rétta hlut þeirra gagnvart atvinnulífi og samfélagi.
- Rektor lætur vinna könnun á stöðu og högum nýlega útskrifaðra nemenda annað hvort ár. Þar skal sérstaklega skoða kynbundinn launamun. Niðurstöður skulu kynntar jafnréttisnefnd ásamt áætluðum aðgerðum.
Framkvæmd og ábyrgð
- Sérstök jafnréttisnefnd fylgist með framgangi jafnréttisáætlunar og skal árlega birta skýrslu um stöðu jafnréttismála innan skólans og áætlaðar aðgerðir. Jafnréttisnefnd er kjörin af háskólaráði og skulu þar sitja þrír aðilar, einn fulltrúi starfsfólks, einn fulltrúi nemenda og formaður, tilnefndur af rektor.
- Framkvæmd jafnréttisáætlunar er á ábyrgð rektors.
- Jafnréttisáætlun skal endurskoðuð af jafnréttisnefnd að undangenginni umræðu í háskólaráði eigi síðar en þremur árum eftir gildistöku.
Sett af háskólaráði Háskólans á Bifröst, þann 26. október 2005