Fréttir
12. mars 2010

Ný bók eftir Jón Ólafsson

Andóf, ágreiningur og áróður er safn greina sem allar fjalla með einum eða öðrum hætti um stjórnmál, menningu og stjórnmálamenningu frá heimspekilegu sjónarhorni. Sumar greinanna hafa birst áður í íslenskum tímaritum og bókum, aðrar eru unnar uppúr fyrirlestrum sem haldnir hafa verið hérlendis og erlendis en ekki birst áður.


Í fyrsta hluta bókarinnar eru þrjár greinar um andóf þar sem grafist er fyrir um mögulegar eða nauðsynlegar leiðir til að réttlæta andóf og andófsaðgerðir. Því er haldið fram að andóf sé nauðsynlegur hluti lýðræðis. Í öðrum hluta bókarinnar er viðfangsefnið ágreiningur eins og hann birtist á sviði samfélagsumræðunnar. Athyglinni er beint að ágreiningseðli nútímasamfélags, þar sem ágreiningur og átök innan samfélagsins knýja áfram breytingar. Í þriðja hlutanum er fjallað um áróður í margvíslegu samhengi, þar á meðal í samhengi vísinda og menntunar.

 

Jón Ólafsson er fæddur í Reykjavík 1964. Hann stundaði nám við Menntaskólann í Hamrahlíð, en lauk B.A. prófi í heimspeki frá Háskóla Íslands árið 1989. Eftir að hafa starfað við blaða- og frétta mennsku í fáein ár, meðal annars sem fréttaritari Ríkisútvarpsins í Rússlandi, hóf Jón framhaldsnám í heimspeki við Columbia háskóla í New York, og varði doktorsritgerð sína þar síðla árs 1999. Doktors ritgerð hans fjallaði um bandaríska heimspekinginn John Dewey og rannsóknarkenningu hans og ber heitið Conflict and method: An essay on Dewey. Sama ár kom út bók Jóns um íslensku sósíalista hreyfinguna, Kæru félagar. Íslenskir sósíalistar og Sovétríkin 1920-1960. Að loknu doktorsnámi var Jón forstöðumaður Hugvísindastofnunar Háskóla Íslands um þriggja ára skeið en starfaði að því loknu við ReykjavíkurAkademíuna að kennslu og rannsóknum og var um tíma formaður hennar. Árið 2005 tók hann við starfi prófessors við nýstofnaða félagsvísindadeild Háskólans á Bifröst og er nú forseti deildarinnar.

 

Hægt er að sjá efnisyfirlitið hér.

 

Hægt er að nálgast innganginn að bókinni hér.

 

Tekið er við pöntunum á bifrost@bifrost.is

 

 

Senda á Facebook
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri