12. mars 2010
Ágúst Einarsson á ársfundi nýsköpunarmiðstöðvar
Ágúst Einarsson rektor Háskólans á Bifröst fjallaði um hagræn áhrif menningar á ársfundi nýsköpunarmiðstöðvar. Benti hann á að á Íslandi er framlag menningar til landsframleiðslu um 4%, en til samanburðar er það 1 til 1,5% í landbúnaði og 6 til 7% í sjávarútvegi.
Ágúst hét því fram að hinar skapandi atvinnugreinar, menningariðnaðurinn geti orðið stóriðja Íslendinga á 21. öld.
Sjá má ræðu hans í heild sinni hér.