Fréttir
12. mars 2010

Ræðuskörungur Bifrastar

Ræðukeppni var haldin í Hriflu, hátíðarsal Háskólans á Bifröst. Þátttakendur voru nemendur í lagadeild og viðskiptadeild skólans. Umræðuefnið var: "Að fara eða vera. Er grasið grænna hinum megin?" Sigurvegari varð viðskiptafræðineminn Friðrik P. Friðriksson en í öðru sæti Þorbjörg Gísladóttir. Keppnin heppnaðist vel og hefur verið ákveðið að hún verði árlegur viðburður á Bifröst héðan í frá. Keppnin var lokapunktur í átta vikna námskeiði sem nefndist “Framsækni til framtíðar.” Þar þjálfaði fjölmiðlakonan Sigríður Arnardóttir (Sirrý) nemendur í samskiptafærni, ræðumennsku og fjölmiðlaframkomu. Í gegnum árin hafa mörg “félagsmálatröllin” útskrifast frá Bifröst. Margir Bifrestingar hafa látið að sér kveða í þjóðfélagsumræðunni, stjórnmálum og fyrirtækjarekstri. Keppnin og námskeiðið var liður í að halda í þá hefð.

 

Til mikils var að vinna því sigurvegari fékk m.a. gistingu og kvöldverð á Hótel Holti í sigurlaun. Vinningurinn var vel við hæfi þar sem flestir keppendur voru á því að grasið væri ekki grænna hinum megin og niðurstaða nemenda var að ungt fólk ætti að taka afstöðu með Íslandi, standa saman og ganga í verkin hér á landi. 
 

Senda á Facebook
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri