Fréttir
8. mars 2010

Ræðukeppni á Bifröst - Hver er ræðuskörungurinn?

Keppni í ræðumennsku í lagadeild og viðskipdadeild Háskólans á Bifröst fer fram miðvikudaginn 10. mars kl. 14-16 í Hriflu.

 

11 hafa skráð sig til keppni og fleiri geta skráð sig á lista hjá Sirrý (Ath. skráning er bindandi)

 

Gert er ráð fyrir að hver keppandi haldi undirbúna ræðu í hámark 2 mín um efnið:

 

"Að fara eða vera! Er grasið grænna hinum megin?

 

Keppendur ráða algjörlega hvernig þeir nálgast umræðuefnið.

 

Ræðurnar mega vera niður skrifaðar og verður horft til þess hvort keppendur
tala greinilega, þekkja textann sinn vel, taka inn hópinn, bera sig vel í
pontu, hafa útgeislun og eldmóð, og hvort málflutningur sé sannfærandi.

Síðari umferð er óformlegri. Þá gefst keppendum kostur á því að koma upp
aftur í stutta stund og svara fyrir sig, bæta við mál sitt eða tjá sig um
orð annarra keppenda.

Dómarar eru:
 
Sigriður Arnardóttir (Sirrý), Bryndís Hlöðversdóttir og Þórir Páll Guðjónsson, auk leynigests.

Verðlaun:
 
Gisting og kvöldverður á Hótel Holti fyrir tvo.
Glæsileg  gjafakarfa með hollustuvörum.

 

Nánari upplýsingar veitir Sirrý. sirry@sirry.is

Senda á Facebook
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri