Fréttir
3. mars 2010

Ráðstefna um íslenska þjóðfélagsfræði

Fjórða ráðstefnan um íslenska þjóðfélagsfræði verður haldin í Háskólanum á Bifröst 7.-8. maí næstkomandi, en hún hefur áður verið haldin í Háskólanum á Akureyri og Háskólanum á Hólum.

Ráðstefnan verður fjölbreytt að vanda með framlögum félagsfræðinga, mannfræðinga, stjórnmálafræðinga, heimspekinga, lögfræðinga, viðskiptafræð-inga, og sagnfræðinga auk fræðimanna á tengdum sviðum. Ráðstefnunni er ætlað að skapa fræðilegan og faglegan umræðuvettvang um þjóðfélagsfræði í víðum skilningi. Þar gefst tækifæri til að kynna rannsóknir og koma þeim á framfæri og taka þátt í umræðum um það sem efst er á baugi hérlendis á sviði þjóðfélagsfræða.

 

Fyrir hönd Bifrastar er umsjón ráðstefnunnar í höndum:

·         Evu Heiðu Önnudóttur, aðjúnkts við félagsvísindadeild Háskólans á Bifröst (evaheida@bifrost.is)

·         Jóns Ólafssonar, prófessors og forseta félagsvísindadeildar Háskólans á Bifröst (jonolafs@bifrost.is)

 

Meðal efnis á ráðstefnunni má nefna:

-         Siðferði í opinberu lífi                          Málefni innflytjenda

-         Íslensk og alþjóðleg menning          Stjórnmál og stjórnkerfi

-         Menningarfræði                                    Menningarstjórnun

-         Lýðræði                                                  Ferðamál

-         Kynjafræði                                             Fjölmiðlar og samfélag

-         Jafnréttismál                                         Niðurstöður rannsóknarnefndarinnar

-         Stjórnun                                                 Háskóli og samfélag

 

Fyrirlestrar

Þeir sem hafa hug á að taka þátt í ráðstefnunni eru vinsamlega beðnir að skrá sig fyrir 22. mars næstkomandi hér neðar á síðunni.

Þátttakendur sem óska eftir að flytja fyrirlestur þurfa þá jafnframt að gefa upp titil fyrirlestrar síns ásamt stuttri lýsingu á efni hans. Stefnt er að því að ljúka skipulagningu ráðstefnunnar og skiptingu í málstofur í lok mars. Öll efni sem flokka má undir þjóðfélagsfræði í víðum skilningi koma til greina, og skipt verður í málstofur eftir efnum fyrirlestra.

 

– Drög að dagskrá –

 

Föstudagur 7. maí

11.30 Skráning

12.00 Hádegisverður

13.00-14.00 Plenumfyrirlestur 1

14.00-17.00 Málstofur

17.30 Gönguferð

19.00 Kvöldverður

 

Laugardagur 8. maí

9.00-12.00 Málstofur

12.00-13.00 Hádegisverður

13.00-14.00 Plenumfyrirlestur 2

14.00-17.00 Málstofur

17.00 Ráðstefnuslit

 

Þátttökugjöld og gistimöguleikar

Þátttakendur greiða 7000 kr. fyrir þátttöku í ráðstefnunni báða daga, 3000 fyrir fyrri daginn en 4000 fyrir seinni daginn. Hádegismatur og kaffi er innifalið í þátttökugjaldi. Auk þess er boðið upp á gistingu á Bifröst meðan húsrúm leyfir og sameiginlegan kvöldverð föstudaginn 7. maí. Til að bóka gistingu og kvöldverð hakið í viðeigandi reiti á skráningarforminu hér að neðan. Gert er ráð fyrir að gengið verði frá ráðstefnugjaldi og greiðslu fyrir gistingu á Bifröst við komuna á ráðstefnuna.

 

Smelltu hér til að skrá þig á ráðstefnuna.

 

Aðrir gistimöguleikar:

Mörg hótel og gistihús eru starfrækt í nágrenni Bifrastar og því ættu ekki að vera vandræði að finna gistingu jafnvel þótt allt fyllist á Bifröst. Þátttakendur eru þó hvattir til að tryggja sér gistipláss eins snemma og mögulegt er. Hér að neðan má sjá lista yfir gistimöguleika í nágrenni Bifrastar. Ráðstefnugestir verða að sjálfir að sjá um að hafa samband við hótelin til að bóka gistingu.

 

Hraunsnef sveitahótel.Það tekur um það bil 10 mínútur að keyra á mill Hraunsnefs og Bifrastar. Upplýsingar um verð er að finna á heimasíðu Hraunsnefs.

www.hraunsnef.is

Símanúmer: 435 0111

 

Hvítibærinn Hamri – með tilboð fyrir ráðstefnugesti.Það tekur um það bil 10-15 mínútur að keyra á milli Hvítabæjarins og Bifrastar. Gisting í uppbúnu rúmi er 6.000 krónur á mann, morgunmatur 1.200 krónur á mann.

Tilboðspakki fyrir tvo 7-9 maí:

Komutími: föstudagur, brottför sunnudagur. Innifalið: Gisting í tvær nætur í uppábúnum rúmum (hægt er að fá fjölskylduherbergi þá bætist við upphæðina), morgunmatur, tveggja rétta kvöldverður á laugardeginum og morgunmatur á sunnudegi fyrir samtals 21.430 krónur.

www.hvitibaerinn.is

Símanúmer: 437 2000 / 862 2655

 

Hótel Hamar – með tilboð fyrir ráðstefnugesti. Það tekur um það bil 20 mínútur að keyra á milli Hótel Hamars og Bifrastar.

Tveggja manna herbergi: 6.500 krónur á mann með morgunverði.

Eins manns herbergi: 10.650 krónur með morgunverði

www.hotelhamar.is

Símanúmer: 433 6600

 

 

Senda á Facebook
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri