24. febrúar 2010
Einstakt tækifæri og sértilboð fyrir nemendur Háskólans á Bifröst
Íslenski markaðsdagur Ímark verður 5. mars næstkomandi. Þar mun Kevin Lane Keller, einhver fremsti fræðamaður heims á sviði markaðsfærslu og merkjastjórnunar halda erindi í fimm þáttum um merkjastjórnun (e. Branding). Kevin Lane Keller þarf vart að kynna fyrir þeim sem hafa stundað markaðsnám þar sem hann er höfundur fjölmargra bóka og greina á þessu sviði. Má í því sambandi nefna að hann er höfundur bókarinnar Strategic Brand Management (http://www.amazon.co.uk/Strategic-Brand-Management-European-Perspective/dp/0273706322/ref=sr_1_1?ie=UTF8&s=books&qid=1267024207&sr=8-1) sem m.a. er kennd í Vörumerkjastjórnun á Bifröst. Þá er hann meðhöfundur P. Kotlers á Marketing Management sem einnig er víða kennd á háskólastigi.
Nánar um erindin og dagskrána má sjá á vef Ímark, þ.e. www.imark.is eða her. Það er óhætt að segja að þetta er mikill fengur fyrir þá sem eru að fást við markaðsmál í dag, eða hyggjast gera það í framtíðinni.
Það er ekki síður sönn ánægja að geta tilkynnt ykkur það að nemendur við Háskólann á Bifröst njóta sérstakra kjara á þennan fyrirlestur og er verð fyrir Bifrestinga aðeins Kr. 19.900 (meðan fullt verð er Kr. 29.900)
Til athugunar við skráningu:
Á skráningarsíðu er fellistika og velja háskólanemar “ HÁSKÓLANEMI – Kevin Keller ráðstefnan “ til að fá afsláttarverðið. Einnig að skrá nafn skólans í reit sem er merktur “Fyrirtæki”. Hægt er að greiða með greiðslukorti eða millifærslu á Imark kt 691286 -1779 banki. 101-26-861779 og senda kvittun á
imark@imark.is
Nánari upplýsingar um ráðstefnuna er hægt að nálgast hér.