18. febrúar 2010
Málstofa 24. febrúar 2010 fellur niður vegna veikinda
Málstofa sem átti að vera 24. febrúar fellur því miður niður vegna veikinda.
EVE Online er netsamfélag með fleiri þátttakendum en íbúar eru á Íslandi í dag. Samfélag þetta er þannig byggt upp að í því gilda sömu grundvallarforsendur varðandi viðskipti eins og í nútíma vestrænum samfélögum. EVE Online er því kjörinn vettvangur til þess að rannsaka, og læra um, hegðan einstaklinga útfrá hagfræðilegum og félagsfræðilegum forsendum. Þessi fyrirlestur mun fara yfir uppbyggingu hagkerfisins í EVE og hvernig unnt er að nota EVE sem tæki til kennslu í viðskiptafræðum og hagfræði.
Jafnframt mun formaður leikjafyrirtækja á Íslandi (IGI) halda stutta kynningu á samtökunum.