Fréttir
11. febrúar 2010

Leikskólinn Hraunborg hélt upp á Dag leikskólanna með opnun listsýningar á Bifröst

Föstudaginn 5. febrúar heiðruðu leikskólabörn frá Hraunborg okkur í Háskólanum á Bifröst með nærveru sinni.


Tilefnið var opnun listsýningar í andyri háskólans.
Börnin komu í skrúðgöngu í fylgd leikskólakennara frá leikskólanum. Ágúst Einarsson, rektor, bauð hópinn velkominn en margt var um manninn þar sem foreldrar, nemendur og starfsfólk létu sig ekki vanta á opnunina. Börnin sungu þrjú lög og fengu meira að segja viðstadda til að syngja með sér. Öllum var boðið upp á hressingu áður en þau héldu tilbaka.
Það verður sannarlega ánægjulegt að fá að njóta listaverkanna næstu vikurnar enda fátt sem gleður augað jafnmikið
og barnateikningar.

 

Senda á Facebook
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri