9. febrúar 2010
Eiríksstaðir og Skjaldborg: Tvö verkefni Menningarstjórnunarnema af Bifröst tilnefnd til Eyrarrósarinnar
Tvö verkefni sem tilnefnd eru til Eyrarrósarinnar þetta árið eru leidd af nemendum í meistaranámi í menningarstjórnun á Bifröst. Um er að ræða Eiríksstaðir í Haukadal þar sem Helga Ágústsdóttir, ferðamálafulltrúi Dalabyggðar, leiðir ferðamenn í allan sannleik um uppruna Leifs heppna, og Skjaldborg - hátíð íslenskra heimildarmynda á Patreksfirði, sem Alda Davíðsdóttir hefur tekið á móti bíóáhugamönnum undanfarin ár. Auk þess er tónlistarhátíðin Bræðslan á Borgarfirði eystra tilnefnd.
Eyrarrósin er sérstök viðurkenning fyrir framúrskarandi menningarverkefni á landsbyggðinni og eru verðlaunin samstarfsverkefni Listahátíðar í Reykjavík, Byggðastofnunar og Flugfélags Íslands. Eyrarrósin verður afhent á Bessastöðum mánudaginn 15. febrúar kl. 16.00 og er það í sjötta sinn sem viðurkenningin er veitt.
Sjá nánar um verkefnin og viðurkenninguna á vef Listahátíðar www.listahatid.is/um-listahatid-i-reykjavik/frettir/nr/1214