Fréttir
29. janúar 2010

Auður Ingólfsdóttir ráðin í starf sérfræðings við Félagsvísindadeild

Auður Ingólfsdóttir M.A: hefur verið ráðinn í starf sérfræðings við Félagsvísindadeild skólans. Hún hóf störf fyrsta janúar og mun vinna að uppbyggingu náms í alþjóðafræðum. Auður mun einnig sjá um kennslu í alþjóðastjórnmálum á vorönn og hafa umsjón með námskeiði í átakafræði á sumarönn.

 

Auður H. Ingólfsdóttir er með BA gráðu í alþjóðafræðum frá Washington háskóla í Seattle, próf í hagnýtri fjölmiðlun frá HÍ og meistaragráðu í alþjóðasamskiptum frá Fletcher School of Law and Diplomacy við Tuftsháskóla í Boston. Í meistaranámi sérhæfði hún sig í umhverfis- og auðlindastefnu, samningaviðræðum og úrlausn deilumála. Hún hefur starfað við Háskóla Íslands sem verkefnastjóri við meistaranámsbraut í umhverfisfræðum, sem sérfræðingur við alþjóðaskrifstofu umhverfisráðuneytisins og sem sjálfstæður ráðgjafi á sviði umhverfismála. Tímabilið 2006-2008 var hún erlendis á vegum íslensku friðargæslunnar, bæði við vopnahléseftirlit á Sri Lanka og sem starfsmaður Sameinuðu þjóðanna á Balkansskaga, þar sem hún gegndi stöðu jafnréttisráðgjafa hjá skrifstofu UNIFEM í Makedóníu.

 

Undanfarinn áratug hefur Auður jafnframt sinnt stundakennslu á háskólastigi meðfram öðrum störfum, bæði við HÍ, Háskólasetur Vestfjarða og við Háskólann á Bifröst. 

 

Samhliða starfi á Bifröst er Auður um þessar mundir að hefja doktorsnám í alþjóðastjórnmálum við Háskóla Íslands og Háskólann í Lapplandi, þar sem hún hyggst skoða loftslagsbreytingar og öryggismál á Norðurslóðum út frá feminískum kenningum og hugmyndafræði.


 

 

Senda á Facebook
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri