Fréttir
28. janúar 2010

Fyrsti fyrirlesturinn um ímyndir og sjálfsmyndir.

 

ÍNOR og ReykjavíkurAkademían kynna í samvinnu við Háskólann á Bifröst

 

Fyrirlestraröð um ímyndir og sjálfsmyndir.

 

Fyrsti fyrirlesturinn verður haldinn í ReykjavíkurAkademíunni, Hringbraut 121 frá kl. 12:00 -13:30 föstudaginn 29. janúar í fyrirlestrarsal á 4. Hæð.

 

Táknmyndir þjóðarinnar – þá og nú. Guðmundur Oddur Magnússon

 

Fyrirlesturinn fjallar um valið á þeim táknum sem síðar urðu að táknmáli íslenska lýðveldisins. Framsetning þessarra tákna hangir saman við sögu prentmyndasmíði og sögu grafískrar hönnunar á Íslandi. í fyrirlestrinum sem er fyrst og fremst í myndrænu formi er borið saman það andrúmsloft sem ríkti gagnvart þessum táknum á þeim tíma sem þau urðu til og virðing þeirra í samtímanum.

 

Guðmundur Oddur er prófessor í grafískri hönnun við Listaháskóla Íslands. Meðfram kennslu starfar sem myndlistarmaður, sýningastjóri og grafískur hönnuður. Á síðustu 10 árum hefur hann safnað saman drögum að sögu grafískrar hönnunar á Íslandi.

 

Hildigunnur Ólafsdóttir stýrir fundi og umræðum.

 

Allir velkomnir. 

 

Hægt er að nálgast fyrirlesturinn hér.

Senda á Facebook
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri