27. janúar 2010
Útgáfa: Umhverfismál í innkaupavagninum
Verslanir geta aukið umhverfisvitund neytenda
Umverfismál í innkaupavagninum er nýtt fræðslurit sem hefur að geyma aðgengilegt efni fyrir starfsmenn og stjórnendur verslana um það hvernig þeir geta stuðlað að umhverfisvernd og um leið bætt ímynd verslana sinna. Ritið fjallar annars vegar um hvernig starfsmenn verslana geta haft mótandi áhrif á umhverfisvitund viðskiptavina sinna og hins vegar hvernig má draga úr umhverfisáhrifum verslananna sjálfra.
Það er Rannsóknasetur verslunarinnar við Háskólann á Bifröst sem gefur út ritið. Leitað var til ýmissa sérfræðinga við efnisöflun og framsetningu. Höfundar eru Hafdís Anna Bragadóttir, Lára Jóhannsdóttir og Stefán Gíslason. Meðal ráðgjafa voru Umhverfisstofnun og Fræðslumiðstöð atvinnulífsins. Grafíska hönnun annaðist Magnús Valur Pálsson og umsjón með útgáfunni hafði Emil B. Karlsson.
Ritið nýtist þeim sem vilja fræðast á eigin forsendum og hentar einnig vel til kennslu innan fyrirtækja eða í almennu fagnámi fyrir verslunarfólk. Framsetning er öll aðgengileg, mikið er af skýringarmyndum og lýsandi dæmum úr raunveruleikanum. Þá eru í lok hvers kafla spurningar og verkefnahugmyndir til að tengja efnið betur þeim veruleika sem starfsmenn verslana eru í dags daglega.
Verð ritsins er 500 kr. Hægt er að panta það með því að hringja í síma Háskólans á Bifröst 433 3000 eða með tölvupósti til emil@bifrost.is
Með kveðjum,
Emil B. Karlsson
Rannsóknasetri verslunarinnar
Háskólanum á Bifröst