Fréttir
26. janúar 2010

Málstofa FD í Hátíðarsal á morgun kl. 13.00

 

Staða hrunsins


Félagsvísindadeild heldur málstofu á morgun kl. 13.00 í Hátíðarsal. Uppbygging og uppgjör í samfélaginu eftir hrunið verður umræðuefnið, en frummælendur eru:

 

Eiríkur Bergmann (Stjórnlagaþing og umbætur á stjórnskipaninni)
Eva Heiða Önnudóttir (Spilling og pólitískt traust: Er skýrsla rannsóknarnefndarinnar líkleg til að efla pólitískt traust?)
Magnús Sveinn Helgason (Rannsóknarnefndin og Pecora nefndin)
Jón Ólafsson (Öryggisventlar, málpípur, gjár og traust)

 

Framsögumenn tala í 10 mínútur hver, en svo verða umræður.
Málstofan er haldin fyrir nemendur og kennara í félagsvísindadeild en allir eru velkomnir meðan húsrúm leyfir. 

Senda á Facebook
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri