Fréttir
26. janúar 2010

Efla þjóðaratkvæði lýðræðið? Hádegisfundur Félags stjórnmálafræðinga

Félag stjónmálafræðinga mun í samstarfi við stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands, efna til hádegisfundar föstudaginn þann 29.janúar í stofu 311 í Árnagarði. Efni fundarins verður þjóðaratkvæði og lýðræði. Á fundinum verður velt upp spurningum um hver tilgangur þjóðaratkvæðagreiðslna er og hvort þær standist almennt væntingar, til dæmis um beint lýðræði.

 

Svanur Kristjánsson prófessor í stjórnmálafræði mun flytja erindi um hvernig þjóðaratkvæðagreiðslur hafa verið notaðar á Íslandi fyrir stofnun lýðveldis og bera saman umræður um þjóðaratkvæði á fullveldistímanum við umræðu dagsins í dag.

 

Bryndís Hlöðversdóttir mun flytja erindi um hvernig þjóðaratkvæðagreiðslur hafa verið notaðar í nágrannaríkjum Íslands og velta upp þeirri spurningu hvort að þær séu leið til að efla lýðræði.

 

Að afloknum erindum fara fram umræður og fyrirspurnir undir stjórn Svavar Halldórssonar stjórnmálafræðings.

 

Hádegisfundurinn stendur frá klukkan 12:00 til 13:00. Allir velkomnir. 

Senda á Facebook
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri