Fréttir
25. janúar 2010

Rannsóknasetur verslunarinnar við Háskólann á Bifröst tekur saman lista yfir mest seldu bækurnar

Nýr metsölulisti bóka var nýlega birtur og verður endurnýjaður á tveggja vikna fresti. Listinn er byggður á upplýsingum frá flestum bóksölum landsins, dagvöruverslunum og öðrum verslunum sem selja bækur. Það er Rannsóknasetur verslunarinnar við Háskólann á Bifröst sem annast söfnun upplýsinganna fyrir hönd Félag íslenskra bókaútgefenda. Auk þess sem listinn verður birtur á vef rannsóknasetursins mun Fréttablaðið birta hann, Félag íslenskra bókaútgefenda og fleiri.


Hægt verður að flokka bækurnar eftir ýmsum forsendum í gögnum Rannsóknasetursins. Þannig er hægt að fá greina fjölda skáldsagna, bæði eftir innlendum og erlendum höfundum, fræðibækur, barnabækur o.s.frv. auk þess sem greint er á milli innbundinna bóka og í kiljum.

 

Senda á Facebook
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri