Fréttir
20. janúar 2010

Ásta Dís Óladóttir doktor í alþjóðlegum viðskiptum

Ásta Dís Óladóttir, forseti Viðskiptadeildar  Háskólans á Bifröst varði s.l föstudag 15. Janúar doktorsverkefni sitt við Viðskiptaháskólann í Kaupmannahöfn.    Verkefnið bar yfirskriftina Fjárfestingar frá smáum hagkerfum; alþjóðavæðing íslenskra fyrirtækja. 

 

Ritgerðin er byggð á 5 greinum sem Ásta Dís hefur skrifað um alþjóðavæðingu smárra hagkerfa.  Fyrsta greinin sem ber heitið Internationalization From a Small Domestic Base – An Empirical Analysis of Foreign Direct Investments of Icelandic Firms birtist í Management International Review árið 2009. Þar fer Ásta Dís yfir þá þróun sem hefur átt sér stað í hagkerfinu hér á landi og þá þætti sem ýttu undir fjárfestingar íslenskra fyrirtækja.  Greinin gefur yfirlit yfir helstu fjárfestingar íslenskra fyrirtækja allt frá árinu 1915 til ársloka 2006.  Í greininni  The Rise of Icelandic Multinationals (MNCs): Lessons from the fall sem er í seinni ritrýningu hjá The European Management Journal fjallar Ásta Dís um hvatann að baki beinum erlendum fjárfestingum út frá mismunandi sjónarhornum. Global expansion strategies for Icelandic, Irish and Israeli Multinationals er skrifuð af Ástu Dís, Marinu Papanastassiou, Bersant Hobdari og Evis Sinani .  Þar er gerður samanburður á fjárfestingastefnu fyrirtækja frá Íslandi, Írlandi og Ísrael.  Í greininni Integrative capacity: The relationship between headquarters and subsidiaries sem birtist í  Review of Market Integration á vormánuðum 2010 er fjallað um hvaða þættir eru mikilvægir þegar sameina á tvö fyrirtæki og mikilvægi þess að stjórnendur fyrirtækja nýti þá reynslu og þekkingu sem þeir öðlast við yfirtökur til áframhaldandi fjárfestinga.  Að lokum er síðasta greinin The Business Model of the Boom period: An aggressive growth through FDIs þar sem fjallað er um það viðskiptamódel sem íslenskir bankar m.a  notuðu auk þess sem litið er á hvað hefði betur mátt fara hér á landi.

 

Í umsögn dómnefndar um ritgerðina segir meðal annars að þetta sé fyrsta rannsóknin á alþjóðavæðingu íslenskra fyrirtækja og því auki hún við þekkingu á fjárfestingum fyrirtækja á Norðurlöndunum, auk þess sem hún varpar skýru ljósi á fjárfestingar og fjárfestingahvata fyrirtækja frá smáum hagkerfum.  Ásta Dís hefur náð á þeim tíma sem hún vann doktorsritgerðina að búa til einstakt gagnasafn um fjárfestingar íslenskra fyrirtækja og nýtir hún fjölbreyttar aðferðir til þess að vinna úr þeim gögnum sem og öðrum, auk þess sem hún kemur með mjög áhugavert sjónarhorn á þær kenningar sem liggja til grundvallar beinum erlendum fjárfestingum, þar sem Ásta Dís skoðar samspil fyrirliggjandi kenninga meðal annars og bætir við þær með sínu framlagi.

 

Leiðbeinandi Ástu Dísar var Marina Papanastassiou professor við Department of International Economics and Management við Copenhagen Business School. Dómnefndin var skipuð þeim Jens Gammelgaard við Copenhagen Business School sem var formaður, Tamir Agmon, professor við Institute of Innovation and Entrepreneurship School of Business, Economics and Law við Háskólann í Gautaborg  í Svíþjóð og Philippe Guggler, professor og forstöðumanni Center for Competitiveness,  Faculty of Economics and Social Sciences, við Háskólann í Fribourg í Sviss.

Senda á Facebook
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri