19. janúar 2010
Hvað tók við eftir nám á Bifröst - Málstofa í dag kl 13 - 15
Málstofa Hollvinasamtaka Háskólans á Bifröst. Miðvikudaginn 20. janúnar 2010 kl 13. - 15. í Hriflu.
Fyrsta málstofa annarinnar verður haldin í Hriflu á morgun kl. 13 – 15. Útskrifaðir nemendur segja frá reynslu sinni af náminu á Bifröst og hvernig það nýttist þeim í starfi.
Brynhildur Björnsdóttir, útskrifuð með HHS gráðu úr félagsvísindadeild. Starfar sem sjálfstæður ráðgjafi og sérfræðingur við rannsóknir hjá Háskólanum í Reykjavík.
Sverrir B. Pálmason, útskrifaður með BS í viðskiptalögfræði og ML frá Bifröst. Eigandi og stofnandi JÁS lögmenn.
Haukur Skúlason, útskrifaður með BS í viðskiptafræði frá Bifröst. Einn af stofnendum Kapex og Skuldir ehf.
Hlédís Sveinsdóttir, formaður Hollvinasamtakanna og stofnandi Kindur.is stýrir málstofunni.
Hægt er að hlusta á upptöku málstofunni hér.