19. janúar 2010
Hressar stelpur söfnuðu peningum fyrir fórnarlömb jarðskjálftanna á Haítí
Dagana 15. og 16. janúar sl. tóku þær Bryndís Arna Bridde (9 ára) og Ágústa Halla Guðjónsdóttir (9 ára) sig til og
gengu í hús við Háskólann á Bifröst. Tilgangurinn var að safna fé fyrir bágstadda á Haítí.
Vilja vinkonurnar koma á framfæri þakklæti til þeirra sem lögðu málefninu lið, en alls söfnuðust kr. 12.624.-
Söfnunarféð hefur verið lagt inná hjálparsjóð Rauða kross Íslands sem sér um að koma því áleiðis