14. janúar 2010
Gulleggið 2010 - hugmyndasamkeppni Innovit og samstarfsháskóla.
Frumkvöðlakeppni Innovit er tækifæri fyrir frumkvöðla til að öðlast reynslu, þekkingu og tengslanet til að koma sínum hugmyndum á framfæri og vinna að stofnun nýrra og öflugra fyrirtækja á Íslandi.
Allir hafa þátttökurétt í keppninni, en hún er haldin að fyrirmynd samskonar keppni við MIT háskóla í Bandaríkjunum og sambærilegra keppna á Norðurlöndunum sem kallast Venture Cup.
I. Hluti: Skráning og 1-2 blaðsíðna ágripi um viðskiptahugmynd er skilað inn. Skilafrestur: 20. Janúar.
II. Hluti: Fullmótaðri viðskiptaáætlun er skilað inn. Skilafrestur: 8. Mars.
III. Hluti: Rýnihópur sérfræðinga velur 10 bestu viðskiptaáætlanirnar að því gefnu að þær standist gæðakröfur Innovit. Þátttakendur kynna þær fyrir dómnefnd og fjárfestum. Kynningar fara fram 10. apríl 2010.
Heildarverðmæti vinninga er metið á 4.200.000 kr, þar af 2.500.000 í beinum fjárframlögum.
Í stjórn Innovit eru tveir nemendur frá Háskólanum á Bifröst en þeir eru Ingibjörg Lilja Þórmundardóttir og Sæunn Ingibjörg Marinósdóttir.
Kynningarfundur verður haldinn í Kringlunni – Bifröst , fimmtudaginn 14. Janúar. 2010 – kl 14:00 - 16:00 sem Ingibjörg L. Þórmundardóttir heldur.
Frekari upplýsingar um keppnina er hægt að nálgast hér.