Fréttir
13. janúar 2010

Njörður Sigurjónsson doktor í menningarstjórnun

Doktorsvörn frá Department of Cultural Policy and Management, City University í Lundúnum
Njörður Sigurjónsson doktor í menningarstjórnun
 
Njörður Sigurjónsson lektor við Háskólann á Bifröst, varði nýlega rannsóknarverkefni sitt, „Tilbrigði við hlustun - 21 hljómsveitartónleikar skoðaðir í ljósi myndhverfingar Johns Dewey um list sem upplifun“ (e. Variations on the act of listening: Twenty-one orchestra audience development events in light of John Dewey’s ‘art as experience’ metaphor). Vörnin fór fram við Department of Cultural Policy and Management í City University í Lundúnum og andmælendur voru dr. Derrick Chong  og Vicky Woollard. Aðalleiðbeinandi við rannsóknina var dr. Juliet Steyn, en aðrir leiðbeinendur voru dr. Eric Moody og dr. Sara Selwood.
 
Í umsögn dómnefndar um rannsóknina segir að hún sé frumlegt framlag til þekkingar á menningarstjórnun og kanni áhugaverðar nýjar leiðir til þess að nálgast áheyrendur sinfóníuhljómsveita.
 
Ágrip af rannsókn:
Rannsóknin er framlag til gagnrýninnar skoðunar á áhrifum markaðsfræðikenninga um hlutverk áheyrenda og á skipulag tónleika sinfóníuhljómsveita. Valdir tónleikar átta sinfóníuhljómsveita voru skoðaðir í ljósi pragmatískrar fagurfræði, en hljómsveitirnar voru Fílharmóníuhljómsveit Berlínar, Fílharmóníuhljómsveit Lundúna, Sinfóníuhljómsveit Lundúna, Sinfóníuhljómsveit Parísar, Konunglega fílharmóníuhljómsveitin, Sinfóníuhljómsveit San Franciscoborgar og Tónleikahljómsveit breska ríkisútvarpsins.
 
Niðurstöður rannsóknarinnar eru að margt  af því sem sinfóníuhljómsveitir gera til þess að laða að og bjóða áheyrendur velkomna fellur vel að hinni pragmatísku endurskilgreiningu á list sem ferli þar sem allir viðstaddir taka þátt. Einkennandi fyrir slíka viðburði er líka endurmat á starfaskiptingu, stigveldi, þekkingarvaldi og áhersla á mikilvægi líkamans.
 
Rannsóknin leiðir í ljós að hefðbundnar kenningar  um áheyrendaþróun (e. audience development), sem einkennast af áherslu á „viðskiptavini“, „neytendur“ og „auðveldara aðgengi“, bjóða almennt upp á heldur takmarkaða sýn á hlustandann sem þátttakanda í tónlist. Til þess að takast á við þennan veruleika og jafnframt að bjóða uppá valkost við ríkjandi hugmyndafræði er pragmatísk fagurfræði heimspekingsins Johns Dewey kynnt til sögunnar.  Í ljósi hennar er hin alltumlykjandi orðræða markaðsfræðinnar skoðuð og gagnrýnd.

Senda á Facebook
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri