11. desember 2009
Ásta Dís Óladóttir tekur sæti í samningahópi um myntbandalag
Ásta Dís Óladóttir forseti Viðskiptadeilar hefur tekið sæti í samningahóp um myntbandalag.
Hlutverk samningahópsins er að annast undirbúning aðildarviðræðna við ESB að því er varðar kafla 17 (Efnahags- og peningamálastefna). Í því felst einkum innri greining regluverks ESB af Íslands hálfu svo og sameiginleg greining með ESB, undirbúningur tillagna um samningsafstöðu Íslands, viðræður við ESB um samningsafstöðuna og nánari mótun hennar eftir því sem viðræðunum vindur fram og tilefni er til. Hópurinn skal vera samninganefnd og aðalsamningamanni til ráðgjafar meðan á aðildarviðræðum stendur.
Sjá nánar hér.
Einnig á Ástráður Haraldsson, dósent í Lagadeild sæti í samningahópi um lagaleg málefni varðandi umsókn í ESB
Hlutverk samningahóps um lagaleg málefni er að vera ríkisstjórn Íslands, samninganefnd Íslands, aðalsamningamanni og samningahópum um afmörkuð efnissvið til ráðgjafar um öll lagaleg málefni sem aðalsamningamaður eða einstakir samningahópar telja nauðsynlegt að afla álits hópsins á. Jafnframt skal hópurinn fjalla um og yfirfara drög að texta aðildarsamnings Íslands jafnóðum og vinnslu texta hans vindur fram og vera utanríkisráðuneytinu til ráðgjafar og aðstoðar í því efni. Eftir ákvörðun er unnt að fela hópnum önnur sérstök verkefni í tengslum við umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu og meðferð aðildarsamnings.