Fréttir
10. desember 2009

Jólaverslun fer rólega af stað

Að mati Rannsóknaseturs verslunarinnar virðist jólaverslunin fara rólega af stað. Fram kemur í smásöluvísitölu setursins að sala á fötum og skóm jókst í nóvember frá mánuðinum á undan en samdráttur varð í öðrum vöruflokkum á föstu verðlagi. Þó ber að hafa í huga að í október voru fimm helgar en í nóvember voru þær fjórar.
 
Spá Rannsóknaseturs verslunarinnar um jólaverslunina er að velta í smásöluverslun í nóvember og desember verði óbreytt frá því í fyrra á föstu verðlagi og aukist um 8% á breytilegu verðlagi. Í fyrra nam samdráttur í jólaverslun 18,3% frá árinu á undan. Þetta var mikil breyting frá árunum þar á undan því árlegur vöxtur jólaverslunar nam 7,3% að maðaltali á tímabilinu 2004 – 2007.

 

Nánar má sjá um þetta hér.

Senda á Facebook
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri