Fréttir
7. desember 2009

29 útskrifaðar úr Mætti kvenna

Laugardaginn 5. desember  fór fram útskrift 29 kvenna sem lokið höfðu námskeiðinu Máttur kvenna. Þetta er í 11. sinn sem Háskólinn á Bifröst stendur fyrir þessu námi.

 

Máttur kvenna er 3ja mánaða rekstrarnám í fjarnámi fyrir konur. Mikil áhersla er lögð á að byggja upp tengslanet kvennanna á vinnuhelgum í upphafi náms og í lok námstímabilsins.
Námið hefur verið fjölmörgum kvennanna mikil hvatning til áframhaldandi náms og góðra verka. Nú þegar hafa skólanum borist fjölmargar umsóknir um framhaldsnám í Mætti kvenna II sem hefst í febrúar 2010. Á sama tíma hefst Máttur kvenna I í 12. sinn.

 

Nánari upplýsingar um Mátt kvenna má hér.

Senda á Facebook
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri