Fréttir
1. desember 2009

Sýnum hinn sanna Bifrastaranda.

Í frétt á visi .is í dag kemur fram að hjá Fjölskylduhjálp sé allt tómt. Það vantar mikið af mat og fatnaði.

 

Því ætlum við að taka höndum saman og leggja þessu góða málefni lið og sýna hinn sanna Bifrastaranda.

 

Hugmyndin er sú að næst þegar við förum í búðina, kaupum við eitthvað smávægilegt aukalega t.d grænar baunir, rauðkál, súkkulaði, appelsín, malt eða annað jólalegt. Hægt verður að skilja vörurnar eftir í söfnunarkassa í Samkaupum.

Tekið verður á móti “jólafötum” á bæði kyn og allan aldur í móttöku skólans hjá Maríu. Einnig er hægt að gefa hvers kyns “jólagjöf” og þá er hægt að fá  gjafapappír í móttökunni.  Jólapökkunum verður síðan safnað saman undir jólatrénu í afgreiðslunni.

 

Fyrsta sending til Fjölskylduhjálpar fer frá Bifröst 7. des þar sem fyrsta úthlutun hjá Fjölskylduhjálp er 9. Des. 

 

Sýnum jólaandann í verki.

 

Kv. Starfsfólk Háskólans á Bifröst

Senda á Facebook
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri