26. nóvember 2009
Háskólinn á Bifröst býður fleiri nýjungar fyrir nemendur sína
Háskólinn á Bifröst hefur lengi verið í fararbroddi þegar kemur að nýjungum í námsframboði og kennslu. Nú býður Viðskiptadeild skólans upp á fleiri nýjungar og undirbýr nemendur sína vel fyrir þátttöku þeirra í atvinnulífinu. Í fyrsta lagi felst þetta í 8 vikna þjálfun sem er liður í því að undirbúa nemendur enn frekar fyrir atvinnulífið m.a með því að aðstoða þá við gerð ferilskráa og að koma rétt fram í atvinnuviðtölum sem og í fjölmiðlum. Hugmyndin að þessu hagnýta námskeiði er sótt aftur til hins svokallaða Bifrastaranda, en áratugum saman hafa útskrifast frá Bifröst nemendur sem urðu og eru forystufólk í atvinnulífinu og félagsmálafrömuðir. Margir úr þessum hópi hafa nefnt að sú þjálfun sem þeir fengu á Bifröst, m.a í ræðustól og í félagsstörfum hafi nýst þeim einstaklega vel. Ætlunin með þessu námskeiði er að vekja upp hinn gamla góða ,,Bifrastaranda“ sem svífur hér enn yfir vötnum. Við teljum að enginn skóli geti státað sig af eins miklu félagsstarfi í gegnum tíðina og Bifröst.
Starfsnám á öllum sviðum atvinnulífsins
Starfsnámið er 4 vikna þjálfun á vinnustað undir faglegri handleiðslu reyndra stjórnenda hjá fyrirtækjum og stofnunum í opinbera- og einkageiranum. Fyrirtækin sem um ræðir eru allt frá sprotafyrirtækjum til stóriðju og því ljóst að fjölbreytileikinn er mikill. Nemendur vinna að tilteknum verkefnum á vinnustaðnum og öðlast þannig dýrmæta reynslu auk þess sem þeir auka tengsl sín á vinnumarkaði.