19. nóvember 2009
Tónleikar með Tríói Andrésar Þórs miðvikudaginn 25. nóv. kl. 17
Háskólatónleikar Háskólans á Bifröst verða miðvikudaginn 25. nóv. frá kl. 17 til 18 í Kaffihúsinu á Bifröst með Tríói Andrésar Þórs. Tríóið skipa, auk Andrésar Þórs Gunnlaugssonar sem leikur á gítar, þeir Þorgrímur Jónsson kontrabassaleikari og Einar Valur Scheving trommuleikari. Tríóið leikur eigin útsetningar á þekktum lögum úr amerísku söngbókinni, íslensk dægurlög úr smiðju Jóns Múla og Jenna Jóns í bland við eigin lög. Útsetningarnar eru nýstárlegar og gefa ferska sýn á þessi lög. Einnig leika þeir lög af nýjum diski þar sem er að finna jazzstandarda í áhugaverðum útsetningum.