16. nóvember 2009
Skýrsla vinnuhóps um eftirlit Alþingis með framkvæmdarvaldinu
Alþingi hefur gefið út skýrslu vinnuhóps forsætisnefndar um þingeftirlit. Í júli 2008 fól forsætisnefnd hópi þriggja lögfræðinga að fara yfir núgildandi lagareglur um eftirlit Alþingis með handhöfum framkvæmdavalds og leggja mat á hvort breytinga væri þörf.
Í vinnuhópnum áttu sæti: Bryndís Hlöðversdóttir aðstoðarrektor Háskólans á Bifröst og formaður vinnuhópsins, Ragnhildur Helgadóttir prófessor og Andri Árnason hrl, sem ásamt starfsmanni hópsins Ásmundi Helgasyni lögfræðingi, skrifuðu skýrsluna.
Skýrsluna má nálgast hér.