Fréttir
11. nóvember 2009

Er íslensk myndlist áhugaverður fjárfestingarkostur - Jóhann Ágúst Hansen kynnir lokaverkefni sitt

Skýrsla um hvort íslensk myndlist sé áhugaverður fjárfestingakostur hefur verið birt.

Þessi skýrsla er lokaverkefni höfundar í viðskiptafræði við Háskólann á Bifröst vorið 2009 og hlaut hæstu einkunn. Rannsökuð voru listaverkasöfn fjögurra einstaklinga auk þess sem könnun var lögð fyrir rúmlega 800 starfandi myndlistarmenn. Því til viðbótar var rekstur 55 rekstraraðila skoðaður og metinn út frá reynslu höfundar sem hefur starfað á þessum markaði í 13 ár.

 

Tilgangur rannsóknarinnar var að athuga hvort íslensk myndlist sé áhugaverður fjárfestingakostur. Ýmis gögn hafa bent til þess að fjárfesting í myndlist sé valkostur fyrir fjárfesta þar sem hagnaðarvon geti bæst við fagurfræðilegan ávinning.

Beitt er fræðilegri söguskoðun þegar íslenskur listaverkamarkaður er borinn saman við erlenda listaverkamarkaði auk þess að þróun þessara markaða er skoðaður í ljósi sögu kauphalla og markaða með verðbréf.

 

Til þess að fá heildarmynd af íslenska listaverkamarkaðinum eru þeir aðilar er þar starfa rannsakaðir. Áhætta þeirra er höndla með listaverk er kortlögð auk þess sem könnun um nám, laun og sölutekjur var lögð fyrir rúmlega 800 starfandi myndlistarmenn.

Ávöxtun og ávöxtunarkrafa á íslenska myndlistarmarkaðnum er sett fram og borin saman við ávöxtun erlendra listaverkamarkaða. Ávöxtunarkrafan er reiknuð út samkvæmt CAPM líkaninu auk þess sem stuðst er við Íslensku listaverkavísitöluna. Ávöxtunarkrafa íslenska listaverkamarkaðarins er 10,85%.

 

Listaverkasöfn fjögurra íslenskra listaverkasafnara voru rannsökuð og skrásett. Reiknuð var út ársávöxtun hvers listaverks fyrir sig út frá verðmati sem gert var af uppboðshúsi í Reykjavík. Meðal ársávöxtun safnanna er frá 4,93% til 16,37% ef miðað er við lágt verðmat þeirra en söluþóknun á listaverkamarkaði umfram verðbréfamarkaðinn gæti sett strik í heildarávöxtunina.

Höfundur telur að íslensk myndlist sem verslað er með á Íslandi sé áhugaverður fjárfestingakostur en taka verður fram að einungis er um fræðilegan ávinning að ræða en ekki raunverulegan reiknaðan út frá seldum listaverkum. Helstu ávinningur þeirra er fjárfesta í myndlist mun ávallt vera fagurfræðilegur.

 

Jóhann Ágúst Hansen höfundur skýrslunar var í viðtali í síðdegis útvarpinu í gær á rás 2 sem er hægt að heyra hér.

 

Lokaverkefnið í heild sinni má sjá hér.

Senda á Facebook
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri