7. nóvember 2009
Könnun á afstöðu fólks til ýmissa þjóðmála
Í könnun Rannsóknamiðstöðvar Háskólans á Bifröst sem var gerð dagana 26.október til 3.nóvember 2009 var meðal annars spurt um afstöðu Íslendinga aðildarviðræðna og inngöngu í Evrópusambandið (ESB) og stuðning við forseta Íslands, Ólaf Ragnar Grímsson. Jafnframt voru þeir spurðir sem voru hlynntir eða andvígir inngöngu í Evrópusambandið hver væri helsta ástæða þess.
Þegar spurt var um aðildarviðræður við Evrópusambandið sagðist um helmingur (50,1%) vera þeim hlynntir en 42,7% voru þeim andvígir og 7,2% sögðust vera hvorki andvígir né hlynntir. Jafnframt voru þeir sem bjuggu á höfuðborgarsvæðinu hlutfallslega oftar hlynntir aðildarviðræðum. Í framhaldi var spurt um afstöðu til inngöngu í Evrópusambandið og þá voru mun fleiri sem ekki tóku afstöðu eða 16,6% sem svöruðu hvorki né og 9,3% sögðust ekki vita það. Af þeim sem tóku afstöðu sögðust 29,0% vera mjög eða frekar hlynntir inngöngu á móti 54,4% sem voru því mjög eða frekar andvígir. Sami munur kom fram eftir búsetu eins og þegar spurt var um aðildarviðræður þar sem íbúar á höfuðborgarsvæðinu voru mun frekar hlynntari inngöngu samanborið við íbúa á landsbyggðinni. Að sama skapi var munur eftir aldri, þar sem yngra fólk studdi frekar inngöngu heldur en þeir sem eru eldri.
Könnunina er hægt að nálgast hér.