TTT er kristilegt æskulýðsstarf á vegum Þjóðkirkjunnar fyrir 10 – 12 ára börn (5. – 7. bekkur)
TTT á Bifröst er á miðvikudögum kl. 16:30 – 17:30, í Gauknum, félagsmiðstöð grunnskólabarna.
Í TTT er leikið, sungið, farið með bænir, föndrað og sagðar sögur. Verðlaun eru veitt fyrir góða mætingu.
Síðasta skiptið fyrir jól er 9. desember.
Kirkjuskólinn á Bifröst hefst fimmtudaginn 5. nóvember kl. 17:07 í Kringlunni.
Yngri börn í fylgd foreldra sinna eru hvött til að mæta.
Í Kirkjuskólanum er sungið, sagðar sögur og farið með bænir.
Þemað í vetur er fjársjóðskistan.
Síðasta skiptið fyrir jól er 10. desember.
P.S. Þar sem leikskólinn lokar 16:15 þá eru foreldrar hvattir til að láta
vita á morgun ef það hentaði ef til vill betur að hittast fyrr framvegis.
Leiðbeinendur eru Elínborg Sturludóttir, sóknarprestur í Stafholti og
Alda Baldursdóttir, sviðsstjóri húsnæðis á Bifröst.