Fréttir
2. nóvember 2009

Eva Heiða Önnudóttir fjallar um stækkandi hóp ónáægðra lýðræðissinna

Eva Heiða Önnudóttur var í viðtali við Reykjavík síðdegis og í Silfri Egills á sunnudaginn um afstöðu Íslendinga til lýðræðis þar sem fjallað er um stækkandi hóp óánægðra lýðræðissinna á Íslandi. Eva Heiða skrifaði grein í samstarfi við Ólaf Þ. Harðarson prófessor við stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands þar sem skoðuð var afstaða Íslendinga til lýðræðis sem hugmyndar og til ánægju með framkvæmd lýðræðis frá síðustu aldamótum. Helstu niðurstöður voru þær að á Íslandi hefur hópur óánægðra lýðræðissinna farið vaxandi frá aldamótum, en það eru þeir sem styðja hugmyndina um lýðræði en eru óánægðir með framkvæmd þess. Jafnframt er bent á það að þessi óánægja var þegar farin að láta á sér kræla fyrir árið 2008. 

 

Eva Heiða í Reykjavík síðdegis má heyra hér

Eva Heiða í Silfri Egills á Sunnudaginn má sjá hér

 

Senda á Facebook
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri