Fréttir
2. nóvember 2009

Í fremstu röð – starfsnám

Háskólinn á Bifröst sýnir enn einu sinni að hann er í fremstu röð þegar kemur að nýjungum í námsframboði.

 

Nokkur spennandi og framsækin fyrirtæki hér á landi og Viðskiptadeild Háskólans á Bifröst hafa náð samningum um að taka við nemendum í starfsnám. Þetta er afar mikilvægur liður í því að tengja saman akademíska menntun og hagnýta reynslu nemenda og gerir þá enn samkeppnishæfari á atvinnumarkaðnum.

 

,,Þetta opnar dyr fyrir nemendur út í atvinnulífið, þarna búa þeir sér til tengslanet sem er afar áríðandi og þetta leiðir til þess að þau sjá mikilvægi þess að tvinna saman menntun og starfshæfni. Það er líka þekkt að mjög margir nemendur Háskólans á Bifröst eru komnir í stjórnunarstöður innan fyrirtækja á tiltölulega skömmum tíma” segir Ásta Dís Óladóttir, forseti Viðskiptadeildar.

 

Nemendur sækja um að komast í þessa starfsþjálfun en kemur hún í staðinn fyrir valgrein. Starfsþjálfunin jafngildir 6 ECTS einingum og stendur yfir í 4 vikur samfellt.

Starfsþjálfunin er undir faglegri handleiðslu reyndra stjórnenda á viðkomandi sviði innan fyrirtækisins og mun því nýtast nemendum sérstaklega vel.

 

Hér er alveg einstakt tækifæri fyrir nemendur. Þar kynnast þeir hvernig er að vinna að hagnýtum og raunverulegum verkefnum um leið og þeir auka við  reynslu og starshæfni sína. Það veitir þeim ótvírætt forskot inn í framtíðina.

Senda á Facebook
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri