Fréttir
27. október 2009

Frábært djasstríó á Bifröst miðvikudaginn 28. okt.

Miðvikudaginn 28. október mun djasstríó, sem Árni Heiðar Karlsson píanóleikari, Gunnar Hrafnsson kontrabassaleikari og Matthías Hemstock trommuleikari skipa, leika í Hriflu á Bifröst á háskólatónleikum Háskólans á Bifröst. Það verða m.a. kynnt lög af nýjum geisladiski með tónsmíðum eftir Árna Heiðar. Á tónleikunum í Hriflu verður djass bræddur saman við barrokktónlist, skandinavíska þjóðlagatónlist og bandaríska negrasálma. Tónleikarnir miðvikudaginn 28. eru frá kl. 17 til 18 og eru öllum opnum, sérstaklega börnum, og eru þeir ókeypis.

 

Senda á Facebook
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri