Fréttir
19. október 2009

Háskólinn á Bifröst –nýbreytni í kennsluháttum

Háskólinn á Bifröst og Syddansk Universitet nota þrívíddar sýndarveruleikann „Second Life“ til þess að efla samstarf milli skólanna. Nemendur og kennarar viðskiptadeildar Háskólans á Bifröst taka þátt í tilraunaverkefni sem er ætlað að efla samskipti og samstarf nemenda og kennara í skólunum tveimur. 


Eyjan „Bifrost“ í Second Life sem er í eigu Syddansk, er notuð sem samstarfsvettvangur og kennsluumhverfi. Nemendur mæta þar í fyrirlestra og á fundi til þess að móta og vinna verkefni sín. Þrívíddarumhverfi sem þetta bíður upp á alveg nýja möguleika í kennslu og mikið rými er fyrir sköpunargleði nemenda og kennara.  Í Second Life er að finna mörg spennandi fyrirtæki og frumkvöðla sem vert er að skoða út frá kenningum viðskiptafræðinnar. 


Hópur nemenda á Bifröst heimsótti íþróttaverslun í Second Life í síðustu viku. Heimsóknin var hluti af  rannsókanvinnu þeirra og tóku þau viðtal við John eiganda verslunarinnar sem er 21 árs maður á Bretlandi. Markmiðið var að komast að því hvers vegna hann hefði opnað verslun í Second Life og hvaða áhrif það hefði haft á hans raunverulega líf að vera verslunareigandi í sýndarveruleika.  Ástæðuna sagði hann upphaflega hafa verið leik til þess að afla tekna sem hann síðan notaði til þess að kaupa aðrar vörur í Second Life. Hlutfall af þeim tekjum sem búðareigandinn fær fyrir veltu búðarinnar fær hann borgað í raunverulegum peningum.  Upphaflega seldi John bæði Nike og Adidas vörur í verslun sinni en eitt leiddi af öðru sem varð til þess að hann fór að hanna sína eigin fatalínu.  Bolirnir hans eru nú svo vinsælir í Second Life að það hefur gert það að verkum að hann er að leita fyrir sér í London varðandi opnun sinnar eigin verslunar utan sýndarveruleikans.

 

Eins og fram kom í fréttum Stöðvar 2 sjá hér þann 9. október og í  Fréttablaðinu þann 12. október sjá hér þá er búið að hanna þrívíddarlíkan af Viðey í Second Life undir nafninu Imagine Peace Island og til gamans má geta að sami hópur nemenda á Bifröst var viðstaddur tendrun friðarsúlunnar þann 9. október síðastliðinn í Second Life. Nemendurnir sögðu það hafa verið skemmtilega upplifun að taka þátt í athöfninni. 
“Þetta var mjög flott athöfn þar sem við komum í dagsbirtu, fylgdumst með sólarlaginu, og sáum þegar þrívíð persóna Yoko Ono mætti til að tendra friðarsúluna og halda stutta tölu. Hún lagði áherslu á að hvert okkar hafi kraft til að breyta heiminum og mælti með því að fólk myndi hittast við friðarsúluna og horfa á sólarlagið og óska friðar”.
„Þetta var trúlega okkar fyrsta upplifun af “raunveruleika í sýndarveruleika” og við myndum vilja sjá Nýja Ísland rísa þarna inni, við teljum að Ísland eigi ótrúlega möguleika á að markaðssetja sig fyrir komandi kynslóðir í sýndarveruleika.“ 


 „Second Life“  er svokallað MUVE eða Multi User Virtual Environment, sýndarveruleiki þar sem margir nemendur geta tekið þátt í gagnvirkum samskiptum á sama tíma í þrívíddarumhverfi. Hægt er að nota texta eða hljóð til þess að skiptast á upplýsingum og leysa  verkefni  í  samvinnu   við   aðra   nemendur og kennara sem  geta  verið staðsettir hvar sem er í heiminum.  Háskólinn á Bifröst fetar í fótspor margra erlendra háskóla sem nota sýndarveruleika  sem hluta af kennslurými sínu.  Open University, Harvard University, Texas State University og Stanford eru bara örfáir af þeim háskólum sem hafa sett upp eigið kennslurými í sýndarveruleika þar sem nemendur geta mætt á fyrirlestra, tekið þátt í ráðstefnum eða umræðutímum. 


Á undanförnum árum hefur fjöldi MUVE eða sýndarveruleika margfaldast og eru þeir nú til í mörgum stærðum og gerðum.  Fyrirtæki, stofnanir, samtök, einstaklingar og skólar nýta sér sýndarveruleika til þess að miðla efni, halda fundi og ráðstefnur eða til þess að búa til námsumhverfi fyrir fjarnema og staðnema.
Það er markmið skólans að þegar námi lýkur eiga nemendur að hafa fengið þjálfun og reynslu í að nota nýjustu samskiptamöguleika í alþjóðlegri samvinnu sem er dýrmætt veganesti út í margbreytilegt viðskiptaumhverfi að námi loknu. 
 

Senda á Facebook
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri