14. október 2009
Meistararannsókn í menningarstjórnun um tengsl menningar og viðskiptalífs vekur athygli.
Niðurstöður rannsóknar Lofts Atla Eiríkssonar, sem hann kallar Viðskiptavæðingu menningarlífsins og menningarvæðingu viðskiptalífsins:
Áhrif stefnu íslenskra stórfyrirtækja í styrkveitingum til menningarmála á menningarstofnanir á árunum 2002 til 2008, hafa vakið athygli en Loftur Atli útskrifaðist úr meistaranámi í menningarsjórnun frá Háskólanum á Bifröst í september síðastliðnum. Loftur Atli var meðal gesta í Silfri Egils sem má skoða hér auk þess sem fjallað var um rannsóknina í Speglinum á Rás 1. Þá var húsfyllir í Reykjavíkurakademíunni á fyrirlestri Lofts Atla um rannsóknina í gærkvöldi og líflegar umræður á eftir, sem sjá má hér