8. október 2009
Símenntunarmiðstöðvarnar þakka fyrir sig.
Inga Dóra Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri Símenntunarmiðstöðvarinnar á Vesturlandi og formaður Kvasis, samtaka fræðslu- og símenntunarmiðstöðva, færði rektor fallegan blómvönd í þakkarskyni fyrir rausnarlegar móttökur þegar 40 manna hópur starfsfólks og stjórnarmanna símenntunarmiðstöðva heimsóttu Bifröst 30. október síðastliðinn. Háskólinn á Bifröst á farsælt samstarf við símenntunarmiðstöðvar um allt land, m.a. vegna lokaprófa sem fram fara víðsvegar um landið. Auk þess hefur Háskólinn á Bifröst boðið upp á ýmis námskeið sem símenntunarmiðstöðvar hafa óskað eftir og má þar nefna námskeiðið tímastjórnun og tæknilausnir sem hefst 3. nóvember, sjá: hér
Á myndinni eru: Ingibjörg Guðmundsdóttir, Geirlaug Jóhannsdóttir, Inga Dóra Halldórsdóttir og Ágúst Einarsson rektor.