18. september 2009
Morgunverðarfundur Háskólans á Bifröst um stöðu Noregs í Evrópu í Norræna húsinu
Framtíð Noregs innan eða utan ESB – reynslan af 15 ára sambúð með EES
Dr. Fredrik Sejersted, formaður Evrópuréttarstofnunar Oslóarháskóla.
Morgunverðarfundur Háskólans á Bifröst um stöðu Noregs í Evrópu í Norræna húsinu, fimmtudaginn 24. september kl. 8.15 – 10.00.
Noregur er ásamt Íslandi eina landið á Norðurlöndum sem hefur ekki gerst aðili að Evrópusambandinu hingað til en valið að byggja samskipti sín við Evrópu á EES samningnum. Tvívegis hefur norska þjóðin hafnað aðild að Evrópusambandinu í þjóðaratkvæðagreiðslu og síðustu ár hafa samsteypustjórnir þar í landi byggt samstarfssáttmála sína á svokölluðum “sjálfsmorðsákvæðum” þegar kemur að ESB, sem felur í sér að styðji einhver samstarfsflokkur aðild að ESB á þinginu jafngildi það riftingu stjórnarsamstarfsins.
Nú þegar Íslendingar hafa sótt um aðild að sambandinu spyrja margir hvaða framtíð Noregur eigi innan ESB, einn með örríkinu Liechtenstein? Hver er staða EES samningsins og þeirra stofnana sem hann byggir á ef Ísland gengur í Evrópusambandið? Munu nýafstaðnar kosningar í Noregi breyta stöðunni hvað Evrópumálin varðar?
Á fundinum mun Dr. Fredrik Sejersted, formaður Evrópuréttarstofnunar Oslóarháskóla og prófessor í stjórnskipunarrétti og Evrópurétti flytja erindi um stöðu Noregs innan og utan ESB og reynsluna af sambúð við EES síðustu 15 árin. Sejersted hefur verið lögmaður norska ríkisins í Evrópumálum, m.a. fyrir EFTA dómstólnum, hefur skrifað fræðirit á sviði stjórnskipunarréttar og Evrópuréttar og verið virkur þátttakandi í umræðum um Evrópurétt í gegnum tíðina.
Að lokinni framsögu Sejersted munu Eiríkur Bergmann Einarsson dósent við félagsvísindadeild Háskólans á Bifröst og Elvira Mendez, dósent við lagadeild Háskóla Íslands sitja ásamt Sejersted í pallborði og taka þátt í umræðum. Fundurinn verður jafnframt sýndur með fjarfundabúnaði í Háskólanum á Bifröst. Fundurinn fer fram á ensku.
Fundarstjóri er Ágúst Einarsson, rektor Háskólans á Bifröst.
Aðgangseyrir kr. 1000 – morgunverður innifalinn.
Allir velkomnir.