29. júlí 2009
Halldór Guðmundsson á málstofu
Útrás íslenskra bókmennta
Fimmtudaginn 30. júlí kl. 16:00 mun Halldór Guðmundsson, rithöfundur og verkefnisstjóri, fjalla um bókmenntaútflutning og tækifærin sem felast í því að Ísland verður heiðursgestur Bókasýningarinnar í Frankfurt árið 2011. Margar ólíkar listgreinar tengjast þessu verkefni og erindi sínu mun Halldór, sem hefur mikla reynslu af bókaútgáfu, réttindasölu og ritstörfum, ræða skipulag og undirbúning Frankfurtarverkefnisins, um bókmenntaútflutning hingað til, þýska bókamarkaðinn, þýðendur, hvaða möguleika þessi viðburður gefur, hver markmiðin eru, og hvaða vandamál hafa helst komið upp. Þá verður rætt um markaðsetningu íslensks menningararfs erlendis og möguleika bókmennta til útflutnings og gjaldeyrisöflunar.
Málstofan verður haldin í Hriflu og málstofustjóri er Njörður Sigurjónsson
Allir velkomnir