Fréttir
20. júlí 2009

Herdís Þorgeirsdóttir kjörin forseti Evrópusamtaka kvenlögfræðinga

 Dr. Herdís Þorgeirsdóttir var kjörin forseti       Evrópusamtaka

Dr. Herdís Þorgeirsdóttir
kvenlögfræðinga (EWLA) á    aðalfundi samtakanna sem haldinn var í tengslum við árlega ráðstefnu þeirra í Þjóðmenningarhúsinu í Reykjavík dagana 3. og 4. júlí.

 

Dr. Herdís Þorgeirsdóttir er þriðji forseti Evrópusamtaka kvenlögfræðinga sem stofnuð voru árið 2000 og eru skráð í Brussel. EWLA er samstarfsvettvangur kvenlögfræðinga í Evrópu en markmið samtakanna er að hafa áhrif á löggjöf og stjórnmál í aðildarríkjum Evrópusambandsins og EES-ríkjunum á grundvelli jafnréttis kynjanna.

 

Um 150 manns sátu ráðstefnu EWLA, þar af lögfræðingar frá aðildarríkjum Evrópusambandsins, yfirmenn stofnana þess, þingmenn Evrópuþings og Evrópuráðsþings og forseti stærsta kvenlögfræðingasambands Bandaríkjanna.

Senda á Facebook
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri