Fréttir
19. júlí 2009

Meistaranemar í lagadeild á málstofu

Meistaranemar í lagadeild kynntu á dögunum lokaverkefni sín á málstofu.

 

Aldís Bjarnadóttir  kynnti verkefnið Skyldur fjármálafyrirtækja í aðgerðum gegn peningaþvætti skv. lögum nr. 64/2006 með áherslu á áhættumat viðskiptavina skv. 7. gr. Leiðbeinandi hennar er Kristinn Arnar Stefánsson.

 

Kristín Einarsdóttir kynnti verkefnið  Sérstakar rannsóknaraðferðir lögreglu. Leiðbeinandi hennar er Einar Karl Hallvarðsson.

 

Hanna Steina Arnarsdóttir  kynnti verkefnið  Mörkin milli lægsta stig ásetnings og efsta stigs gáleysis. Leiðbeinandi hennar er  Einar Karl Hallvarðsson.

 

Sigurður Jónas Gíslason kynnti verkefnið Refsilækkanir/hækkanir vegna sifjatengsla. Leiðbeinandi hans er  Kolbrún Sævarsdóttir.

 

Að lokum kynnti Steinbergur Finnbogason verkefnið Áhrif mannréttindaákvæða á réttarstöðu félaga. Leiðbeinandi hans er Ástráður Haraldsson.

 

Fleiri málstofur eru á döfinni og verða þær auglýstar sérstaklega.



 

Senda á Facebook
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri