1. júlí 2009
Þingvallaferð með Sigurði Líndal
|
| Sigurður Líndal á Þingvöllum |
Meistaranemar í lagadeild héldu í árlega fræðsluferð um söguslóðir á Þingvöllum ástamt Sigurði Líndal lagaprófessor. Ferðin er hluti af námskeiði í réttarsögu og lýkur því með heimsókn á þessar sögufrægu slóðir.
Saga Íslands og íslensku þjóðarinnar kemur líklega hvergi betur fram á einum stað en á Þingvöllum við Öxará. Alþingi fór þar með æðsta löggjafar- og dómsvald á Íslandi frá stofnun þess um 930 til 1262-64. Þess vegna er áhugavert að sækja staðinn heim og rifja upp liðna atburði með góðum leiðsögumanni.
Sigurður Líndal er manna fróðastur um sögu Þingvalla og benti fróðleiksfúsum meistaranemum á ýmsa stórmerka staði og náttúruminjar sem tengjast réttarsögunni og sagði sögu þeirra og þinghaldsins á afar líflegan og eftirminnilegan hátt. Ferðin var í alla staði hin ánægjulegasta.