Fréttir
18. júní 2009

Skýrsla um viðhorf íbúa til þjónustu sveitarfélaga komin út

Í janúar 2009 fólu Borgarbyggð og Sveitarfélagið Skagafjörður Rannsóknamiðstöð Háskólans á Bifröst að gera rannsókn á viðhorfum íbúa í dreifbýli í Borgarbyggð og Sveitarfélaginu Skagafirði til þjónustu sveitarfélaganna. Rannsóknin fólst annars vegar í rýnihópum í sveitarfélögunum tveimur og hins vegar í viðhorfskönnun meðal íbúa, sem var byggð að hluta á niðurstöðum rýnihópanna. Í könnuninni var spurt um afstöðu til samgangna í sveitarfélaginu og ýmissa þátta er varða grunn- og leikskóla, svo sem skólaakstur, skólamáltíðir, tómstundir, þjónustu og skiptingu skólahverfa. Sérstök áhersla var lögð á að skoða viðhorf í háskólaþorpum í sveitarfélögunum tveimur en markmiðið var að kanna samfélagsleg tengsl háskólaþorpanna innan sveitarfélaganna.

Skýrsluna má nálgast á vef Rannsóknamiðstöðvar Háskólans á Bifröst. 

Senda á Facebook
Háskólinn á Bifröst | 311 Borgarnes | Sími: 433 3000 | Fax: 433 3001 | bifrost@bifrost.is | Afgreiðslutími 08:00 - 12:00 og 13:00 - 16:00 | Vefstjóri