16. júní 2009
Fjölmenning og umburðarlyndi - málstofa 19. júní
Félagsvísindadeild Háskólans á Bifröst gengst fyrir málstofu um fjölmenningu og umburðarlyndi förstudaginn 19. júní næstkomandi. Tilefnið er vera tveggja gestakennara við skólann, þeirra Lars Binderup frá Syddansk universitet og Brendu Shaffer frá háskólanum í Haifa. Lars kennir ásamt Jóni Ólafssyni námskeiðið Toleration and Cultural Difference, en Brenda mun kenna einnar viku námskeið um orku og stjórnmál. Þátttakendur ásamt Lars og Brendu í málstofunni eru Jón Ólafsson, Haukur Ingi Jónasson og Njörður Sigurjónsson.
Málstofan hefst kl. 13.00 með stuttum framsögum um efnið, en í framhaldi af þeim verða umræður.
Allir eru velkomnir meðan húsrúm leyfir.