11. júní 2009
Heldur betur heldra líf
 |
| Bryndís Hlöðversdóttir talar um stjórnlagaþing - smellið á myndina til að sjá stærri útgáfu |
Sumardvöl eldri borgara Heldra líf stendur nú yfir í Háskólanum á Bifröst. Dagskráin samanstendur af fræðsluerindum, útivist og skemmtun. Í dag hófst dagskráin með göngu og léttum leikfimiæfingum á bökkum Norðurár. Að því búnu hlýddu gestir á erindi Eiríks Bergmanns um kosti og galla Evrópusambandsaðildar og erindi Bryndísar Hlöðversdóttur um stjórnlagaþing. Í kvöld verður harmonikkuskemmtun undir stjórn Þorvaldar Jónssonar í Brekkukoti.
Veðrið hefur leikið við þátttakendur og láta þeir vel af þessari nýbreytni í starfi Háskólans á Bifröst.
Umsjónarmaður Heldra lífs er Geirlaug Jóhannsdóttir.
Nánari upplýsingar um Heldra líf